Afhverju fórum við útí þetta?
Svarið er fyrst og fremst vegna eftirspurnar
Það eru mjög margir sem leita til okkar í leit að ráðum um að komast í gott form, bæði í gegnum síma og tölvuna. Einkaþjálfaramarkaðurinn er orðinn sneisafullur af þjálfurum sem lokið hafa námskeiði en aldrei æft neitt af ráði sjálfir, né verið í formi og selja fjöldaframleidd æfingaprógröm á spottprís. Í hverri æfingastöðinni á fætur annarri eru auglýst átaksnámskeið sem lofa að kúnninn missi X mörg kg á afar skömmum tíma, en sá aðili lærir fátt um hvernig skal gera árangurinn varanlegan og því koma kg hratt á aftur þegar námskeiðinu lýkur.
Okkar ráðleggingar byggjast á okkar lífstíl sem einkennist af hollu mataræði og æfingum með lóðum. Til að móta líkamann og auka brennsluna er nauðsynlegt að lyfta þungt og taka virkilega á því. Við ráðleggjum eftir eigin reynslu og þekkingu, enda bæði með farsælan feril á bakinu í keppnum sem snúa að líkamsformi.
Til að ná til sem flestra varð niðurstaðan að nota nútímatæknina til að koma okkar boðskap á framfæri, þar sem við getum verið í góðu sambandi við okkar kúnna hvort sem við erum í keppnisferðum erlendis eða í okkar daglega lífi hér heima. Við vinnum allt útfrá markmiðum hvers og eins og tökum eingöngu að okkur fólk sem er tilbúið að breyta lífstíl sínum til frambúðar. Að vera þjálfari er oft á tíðum erfitt, en það er fátt meira gefandi en að hjálpa fólki sem vill láta hjálpa sér og horfa á það uppskera árangur erfiðis. Það er ÆÐISLEG tilfinning.
Hér að neðan má sjá setningar úr fjöldamörgum e-mailum sem varð kveikjan að þessu. Þegar maður les svona bréf þá vill maður leggja sig fram um að gera sitt besta við að hjálpa fólki.
- Las einhverstaðar að til að verða góður verður maður að læra frá þeim bestu og þú og maðurinn þinn eruð nú aldeilis þau bestu!
- Finnst þið vera toppfólk þannig að mig langaði að leita til ykkar
- Mig langar eiginlega bara að tala við þig
ÓTRÚLEGA flott og ennþá kvenleg
- Minnsta mál með hrósið bara stating the obivous
- Ég er bara þakklát þér fyrir að vilja hjálpa mér..það er nebla ekki sjálfgefið
- Hef ekki áhuga að vera bara ein kindin sem eltir hinar
- Mér finnst bara best að vita að það er einhver sem ég get leitað til með vandamálin mín varðandi þjálfunina frekar en að swinga eitthvað út í loftið
- þúrt nottla bara awesome !!!
- Viltu vera mentorinn minn og hjálpa mér að fá þrusu líkamann sem mig langar svo í?
** Að sjálfsögðu höldum við áfram að veita fólki ráð sem til okkar leita með spurningar, það er alltaf frábært að geta aðstoðað. En við sérhæfðari óskir eins og þjálfun, mælingar og æfingaprógrömm viljum við benda á þessa þjónustu.
Afhverju viljum við hjálpa öðrum