
ÁRANGURSAGA ALEXÖNDRU
Alexandra kom í þjálfun í september 2010. Ég lét hana rífa sig úr til að mæla hana og meta, þar sem að hún hugðist stefna á keppni í módel fitness um páskana 2011. Undan fötunum kom rosalega grannt mitti og fallegur vöxtur sem ég vissi að skemmtilegt yrði að móta. Ég spurði hana útí lyftingareynslu sem var engin en hún sagðist eiga kærasta sem kynni á tækjasalinn, ég lét hana því strax fá hardcore prógram og hún hefur lyft 6 sinnum í viku síðan þá, með stöðugum bætingum. Það þurfti aldeilis að taka til í mataræðinu hjá henni því þó hún væri vön að borða hollt þá borðaði hún alltof lítið.
Árangurinn sem hún hefur náð á svona stuttum tíma sannar frasann minn ,,maður getur allt sem maður ætlar sér" enda fór hún ein síns liðs alla leið til Ameríku til að sanna hvað í henni býr í stað þess að hika stöðugt og þora ekki að láta drauminn rætast.
Ég þarf ekki að vera að lengja þetta mikið meira því Alexandra sendi mér þetta fallega bréf í morgun sem segir alla söguna, hún fékk ólétta konu til að skæla gleðitárum.. hehehe. Hún var líka næstum því búin að koma af stað fæðingu fyrir tímann um helgina þegar ég var að springa úr spennu yfir keppninni.
Hér er sagan af Ale litlu ... litlu stelpunni minni með brjálaða metnaðinn...


