- ERUM KOMIN MEÐ LOGO !! JIBBÝ
- SAGA FJARÞJÁLFUNARINNAR
- LÝSING Á ÞVÍ HVERNIG ÉG HUGSA FJARÞJÁLFUNINA : LESIST EF ÞIÐ ÆTLIÐ AÐ SÆKJA UM
- NÝR ÞJÁLFUNARSKROKKUR !
Mega flott LOGO dottið í hús!
Ég og Maggi (sjáiði það?), illa sátt með þetta !!! Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. , hannaði það. Nú er það bara að merkja merkja flíkur ofl.. ætla að byrja á að merkja fitness stelpurnar sem eru í þjálfun og svo þá sem eru að ná miklum árangri !
Það er alltaf allt að ske á þessum bæ.. ekkert samt of dugleg að setja það inn hér en ég er búin að vera á haus með þessa þjálfun eða frá því að hugmyndin að minni útfærslu á fjarþjálfun kviknaði fyrir rúmum tveimur árum síðan og mig langar að skrifa smá um það.
Fyrst byrjaði ég á að finna nafn sem gæti hentað undir starfsemina og valdi Betri Árangur, því undir þeim formerkjum viljum við Maggi vinna. Ég keypti því strax lénið, svo leið tíminn og ég hélt áfram að hugsa hvernig ég vildi útfæra þjálfunina á sem áhrifaríkastan hátt.
Ég held að ég hafi skoðað ÖLL fjarþjálfunarforrit á markaðnum og ekkert þeirra hentaði minni hugmynd, flest höfðu þau margt til brunns að bera, en ekkert sem hentaði mér. Því mér leiðist endalaus e-mail hingað og þangað og mig langaði að hver og einn hefði aðgang að öllum upplýsingum á sama stað.
Ég byrjaði að fikra mig áfram með einn og einn kúnna sem leitaði til okkar Magga og þannig bjó ég til mína eigin samskiptaleið sem þróaðist á þann stað sem þjálfunin er núna. Ég er samt langt því frá að vera stopp, því ALLTAF má gera betur :)
Ég hef gengið útfrá því frá upphafi að vinna allt þjálfunarferlið útfrá markmiðum hvers og eins. Því ef gulrótin er nægilega girnileg, þá eltir maður hana og hættir ekki fyrr en maður hefur náð að grípa hana... og þegar maður hefur loks gripið hana, þá er alveg tilvalið að horfa í kringum sig í leit að enn stærri markmiðum og ákkúrat það höfum við verið að gera með okkar fólki.
Til að gera ykkur í hugarlund hvernig mín pæling á þessu öllu saman er. Að þá fer fyrsti mánuðurinn í þetta hefðbundna. Þe. æfingar - og matarplan, yfirferð á matardagbók, svara spurningum, ráðleggja osfrv. Þremur vikum eftir að þjálfunin hefst fæ ég svo sendar mælingar aftur til viðmiðunar frá fyrstu mælingum og svo hefur manneskjan val um að halda áfram. Það er voðalega lítið sem hægt er að meta í árangri útfrá fyrsta tímabilinu, enda ekki ýkja margt sem gerist á 4 vikum. Við erum aðalega að vinna í því að gera æfingarnar og mataræðið að vana og koma því í einhverskonar rútínu.
Þær sem halda áfram, senda okkur svo seinni myndirnar eftir 6 vikur í þjálfun og þá sjáum við yfirleitt hvers manneskjan er megnug. Og þá hefst gamanið, við elskum nefnilega árangur ! Minn hvati þessa dagana er árangur annarra, það er svo ótrúlega góð tilfinning að horfa upp á allan þennan árangur og eiga kannski pínku þátt í að skapa hann og fylgja honum eftir.
Ég hef því ákveðið að breyta skráningardæminu á þann veg að fyrsti mánuðurinn kostar aðeins meira og eftir það verður fjarþjálfunin á sama verði og áður. Ég vil nefnilega halda því þannig að fólk geti sagt sig úr prógramminu eftir fyrsta mánuðinn og öfugt, því ég vil einungis hafa fólk inni sem virkilega ÆTLAR sér að ná árangri. Við nennum ekki að hjálpa þeim sem nenna ekki. Okkar besta auglýsing er fólkið okkar og við ætlum að halda því þannig áfram.
Þar sem ég hef einungis náð að opna aftur fyrir umsóknir tvisvar á árinu.... OG þar sem ég hef mikla löngun til að kynnast fleirum og "smita fleiri" .... OG til að létta aðeins álaginu af sjálfri mér. Þá ákvað ég að nýta eina stelpu sem er einn af mínum fyrstu kúnnum. Síðan hún byrjaði í þjálfun hefur hún náð svo miklum árangri með sjálfa sig að ég er öfga ánægð með að fá hana í lið með okkur. Hún er sjálf búin að fara langan veg með sjálfa sig og það eru ófáar stelpurnar sem minnast á hana í umsóknunum, að þær vilji verða eins og hún og því ekki að leyfa henni að svara því sjálf hvernig hún gerði þetta :) Ég hef þjálfað hana frá grunni og nú hefur hún hætt sem verslunarstjóri í Make up Store og sest á skólabekk að læra einkaþjálfarann.
Ég get því með glöðu geði sagt ykkur frá því að við erum búin að opna aftur fyrir umsóknir og það eru allar stúlkur og konur velkomnar ! Við höfum áfram lokað fyrir umsóknar karlamegin, því Maggi er nú að stefna á Heimsmeistaramót í lok nóvember og athyglin er á því.
Ég kynni því nýjasta þjálfaraskrokkinn í liðsheildina okkar :) Alexöndru Sif. Hér er árangursagan hennar og hún er hvergi nærri hætt, því gulrótin fræga skal alltaf verða girnilegri :)

