Þú ert hér: Heim Blogg og Greinar Fréttir Nýji þjálfunarskrokkurinn

Nýji þjálfunarskrokkurinn

Jæja þá höfum við opnað fyrir umsóknir á nýjan leik hjá okkur.
Í þetta skipti eru nokkrar dagsetningar í janúar og sömuleiðis ein dagsetning á milli jóla og nýárs! 

HÉR getur þú lagt inn umsókn þína!

Hafir þú í huga að keppa í fitness núna um páskana, er seinasti séns að skrá sig hjá okkur þann 29.desember, eftir það verður ekki tekið við slíkum umsóknum. Það vill nefninlega til að mótið er mjög snemma þetta árið, eða í byrjun apríl. Því sjáum við okkur ekki fært að geta tekið á móti fólki eftir þann tíma.

Eins og kom fram í síðustu færslu hjá mér þá hefur bættist við nýr þjálfunarskrokkur hjá okkur í nóvember. Hún Alexandra Sif eða Ale.
Áður en hún kom hafði ég einungis náð að opna fyrir umsóknir tvisvar á árinu, en með hennar aðstoð höfum við saman tök á opna oftar, enda er alltaf gaman að kynnast fleirum, kenna þeim heilbrigðan lífstíl og að fá að skrokkavæða landann!
Þessa elsku hef ég þjálfað frá grunni og gleymi ég aldrei þegar litla hokna og feimna stelpa hoppaði úr klæðunum fyrir mælingu og við mér blasti þetta litla granna mitti. Síðan þá hefur hún aldeilis náð öfga góðum árangri á árinu sem er að líða, ég er því solt að segja frá því að hún hefur nú klárað einkaþjálfarann og mun því taka mun meiri þátt í þjálfuninni.

Í haust tók hún mjög stórt stökk og færði sig úr módelfitness yfir í fitness, vann hún þar sinn flokk og er því Bikarmeistari í fitness. Þegar hún keppti úti á Arnold var ég svo æst við tölvuna að ég var nánast mætt á fæðingardeildina að fæða Ísabellu framm í tímann, en í þetta skipti var ég svo heppin að fá að upplifa þessa tilfinningaríku stund með litla skrokkabarninu mínu, þvílík gleði, enda hennar fyrsti sigur og vel að honum komin, alveg óæþægilega öguð og dugleg þessi stelpa!

Síðan hún byrjaði í þjálfun hefur hún náð svo miklum árangri með sjálfa sig að ég er öfga ánægð með að fá hana í lið með okkur. Hún er sjálf búin að fara langan veg með sjálfa sig og það eru ófáar stelpurnar sem minnast á hana í umsóknunum, að þær vilji verða eins og hún og því ekki að leyfa henni að svara því sjálf hvernig hún gerði þetta :)

Við erum hrikalega gott team og gæti ég því ekki verið ánægðari, hún er bara rétt að stíga sín fyrstu spor í bransanum enda einungis 23 ára stelpan og verður því spennandi að fylgjast með því sömuleiðis.

 

Skelli hér inn mynd sem varð fræg hér fyrr á árinu þegar Ale fyrrverandi spaghettireim eins og hún vil kalla það fór og komst í top tíu í bikini flokki á Arnold Classic. Fæ aldrei leið á að renna yfir árangursöguna hennar, sem lesa má hér

 alemjona

Og svo Alexandra daginn eftir Bikarmótið núna í nóvember.

ale2

 

ale
 Myndir: Kristján Freyr Kristjánsson
Í sameiningu stefnum við á að skrokkavæða landann! :)