Þú ert hér: Heim Blogg og Greinar Mataræði Jólin búin... ráð til að losna við þrotann eftir átið

Jólin búin... ráð til að losna við þrotann eftir átið

HamborgarahryggurJæja jólin búin...

Við Maggi erum búin að lifa í velllystingum hjá ma&pa í bústaðnum alla helgina, þar sem lífið gekk útá að borða og hafa það kósý. Ég á bágt með að ráðleggja fólki hvernig það á að haga sínum jólum hollustulega séð, því að mínu mati á maður bara að slaka á og njóta.  En fyrirspurnirnar hrönnuðust inn frá liðinu sem eru hjá okkur í þjálfun (hef svo metnaðarfullt fólk í þjálfun:) ). Að sjálfsögðu þurfti liðið sem ætlar sér að keppa í vor að herða sig aðeins upp og fá sér bara einu sinni á diskinn og ekki beinlínis að detta í konfektskálina.. en við hin máttum bara njóta þess að borða :) 

Fylgifiskur ofáts og mikillar neyslu á reyktum mat (það var tekið alla leið á þessum bæ.. hamborgarahryggur, hangikjet, reyktir ostar) er bjúgur. Þegar komum heim í gærkvöldi (sunnudag, annan í jólum) gat ég ekki hugsað mér að borða.. enda sá ég varla útúr augunum vegna þrota.. hehehe. Ég þambaði því vatn allan daginn, borðaði ávexti og nartaði í Sellerí stikla á meðan ég svaraði fyrirspurnum í tölvunni. Nokkrum sinnum yfir daginn skaut ég á mig dandelion root töflum og sauð svo engifer og sítrónuvatn fyrir svefninn sem ég henti svo í kælinn. Það er búið að vera minn svaladrykkur í dag og viti menn, þrotinn er farinn, 2 kg farin með og mér líður dásamlega veeeel.  :)

 

Ég sendi póst á liðið mitt í gær þar sem ég útskýrði hvað mér finnst gott að gera eftir svona ofát, ákvað að henda því bara inn hér líka...

Ég mæli með eftirtöldum ráðum til að losa þig við þrotann eftir ofátið og reykta matinn:

  1. Ég mæli með að þú drekkir vel af vatni og kaupir þér töflur sem heita dandelion root, en þær hjálpa til við að losa þig við umfram vökva. Áhrif minnka ef maður tekur þetta í miklum mæli, en geta verið góð lausn af og til. Þetta eru töflurnar sem við notum í vatnslosuninni fyrir mót. Notkun: 2 hylki 2-4 sinnum á dag með mat eða glasi af vatni Taktu þær fram yfir miðvikudag/fimmtudag og hættu svo á þeim.
  2. Einnig mæli ég með að þú sjóðir líter af vatni með engiferrót á kvöldin alla næstu viku og sneiðir niður sítrónu í það. Láttu vatnið kólna pottinum og settu svo í í kæli yfir nótt. Þetta skaltu drekka á milli mála yfir daginn, mjög hreinsandi og gott.
  3. Vatnsmelóna er algjör undra ávöxtur ef um bjúg er að ræða og því gott að snæða niður til að narta í á kvöldin ( nú er komið smáköku og konfektbann á ný)
Annað gott ráð er að nota 2-3 msk af eplaediki í glas af vatni og drekka slíka blöndu nokkrum sinnum yfir daginn. Eplaedik er vatslosandi, hreinsandi, styrkjandi og öflugt til að hreinsa líkamann.

Svo er það bara ræktin á fullt á ný og mataræði skv. venju. Út með konfekt, smákökur og annað jólaát.. 

Eigið góðan dag :)