Þú ert hér: Heim Blogg og Greinar Mataræði BodyFit - Fullkomin leið að kjörþyngd

BodyFit - Fullkomin leið að kjörþyngd

Ótrúlega skemmtilegir tímar framundan...

1

,,Við vigtum, við eldum og þú borðar"

 

Nú er BodyFit síðan komin í loftið og matarpakkarnir eru því komnir í sölu til almennings. Maður ræðst ekkert á garðinn þar sem hann er lægstur, ónei.. það dugar ekkert minna en að fara í samstarf með flottasta veitingastað landsins, Nítjándu. En staðurinn hefur svo sannarlega skipað sér í raðir vinsælustu veitingastaða landsins.

 

 

nitjanda

 

Ég er svo ótrúlega stolt af afrakstri þessa samstarfs okkar. En eftir að vera búin að hjálpa hundruðum manna með að komast í alvöru form, þá held ég að ég geti sagt að mataræðið er ekki bara helmingurinn af árangrinum, heldur skiptir rétt samsetning og hæfilegur kaloríufjöldi allavega 70-80% máli ef hugað er að árangri með líkamsformið.

Og afþví að ég elska að einfalda allt, þá er þetta mesta snilld í heimi því nú hefur aldrei verið eins auðvelt að koma sér í / halda sér í formi.


 

Mig langar að útskýra aðeins hvað logo_bodyfiter:


3

Við erum annarsvegar að tala um þrjá mismunandi matarpakka sem eru samansettir af trefjaríkum kolvetnum, próteinum og hollri fitu:  

Panta matMyndabankiBodyFit DetoxBodyFit BusinessBodyFit 2000BodyFit 1600Forsíða
  • BodyFit 1600 
  • BodyFit 2000
  • BodyFit Business

Og svo hinsvegar ,,hreinsunarpakka" 

  • BodyFit Detox

 

 

 

logo_bodyfit 1600 og 2000 pakkarnir 
** kostar aðeins 3.500 og 3.800 kr. á dag

Eru hugsaðir fyrir þá sem vilja létta sig á heilbrigðan hátt með hollu og bragðgóðu matarræði. Með tölunum er átt við hitaeiningafjölda hvers pakka og þá er 1600 kkal pakkinn hugsaður fyrir konur og 2000 kkal pakkinn hugsaður fyrir karlmenn.

4Í pokanum eru sex máltíðir

  1. gómsætur morgunverður
  2. ferskpressaður grænmetissafi eða blandað berjaboozt í millimál
  3. hollur hádegisverður
  4. léttur millibiti
  5. kvöldverður 
  6. létt kvöldsnarl

 


 

logo_bodyfit Buisness pakkinn 
**kostar aðeins 2.000 krónur á dag.

Hann er  hugsaður fyrir fólk sem vill létta sig á heilbrigðan hátt með hollu og bragðgóðu matarræði. Hér færðu allan þann mat sem þú þarf á meðan á vinnunni stendur, miðað við 8 tíma vinnudag. 

Þau orkugefandi efni sem við neytum fyrripart dags er öllu jöfnu betur nýtt en þau sem við neytum síðla dags. En staðreyndin er sú að hjá flestum leyfir vinnutilhögunin það ekki. Ágæt þumalputtaregla er að einsetja sér að vera búinn að neyta 2/3 þeirra hitaeininga sem neytt er á hverjum degi, fyrir klukkan sex síðdegis. En þetta þýðir að ef fylgt er eftir 1.500 hitaeininga mataræði ætti að vera búið að neyta þúsund hitaeininga fyrir klukkan 18.  

buisnessÍ pokanum eru þrjár máltíðir sem gefa þér samtals 1000 kkal

  1. Val um morgunmat ef þú byrjar daginn snemma, nema þú mætir í vinnu kl.9/10 þá byrjar þú strax á máltíð 2.
  2. ferskpressaður grænmetissafi eða blandað berjaboozt í millimál
  3. hollur hádegisverður
  4. léttur millibiti
  5. Þá borðar þú kvöldverðinn heima hjá þér
  6. og færð þær létta hressingu um kvöldið

 

logo_bodyfit Detox
** kostar aðeins 3.000 kr. á dag

Detox pakkinn miðar að því að hreinsa líkamann, bæta meltinguna og stuðla að betra jafnvægi á blóðsykri. Við mælum með samfelldri fimm daga pöntun til að hámarka árangurinn.

5Í pokanum er: 

* Fersk salat,
* ávaxtabakki,
* grænmetisseyði
* FJÓRIR nýpressaðir ávaxta- eða grænmetissafar, 
sem eru andoxunarríkir og fullir af steinefnum og vítamínum

 

Endilega kíktu á BodyFit síðuna til að fræðast nánar eða panta matinn.
Matseðlar eru væntanlegir í vikunni
....Ef þið prófið þetta þá get ég lofað því að þið verðið ekki fyrir vonbrigðum :)