Mikilvægi félagsskaparins
Við viljum nefna tvö atriði sem hafa reynst okkur vel:
Við stöndum ekki í þessu ein
Ómeðvitað höfum við byggt stuðningskerfi í kringum okkur sem heldur okkur við efnið. Því fleiri sem við virkjum í kringum okkur, því einfaldara verður þetta. Að borða hollan mat og æfa verður einhvernvegin bara svo sjálfsagður hlutur. Þegar þú ákveður að koma þér í form skaltu virkja sem flesta í kringum þig. Gott er að byrja á þeim sem stendur þér næst eins og td. maka eða besta vin. Þegar það hefur tekist verður eftirleikurinn auðveldur.
Við höfum bæði prófað að keppa á sitthvoru mótinu og stefna svo saman á eitt ákveðið mót. Það er eins og svart og hvítt. Að koma saman heim af æfingu og annað okkar vill pizzu, en hitt er innstillt á mót og þarf því hreina fæðu er ekki skemmtilegt. Við höfum því lært það að annað hvort stöndum við í þessu saman og styðjum hvort annað, eða sleppum því. Við ráðleggjum því þeim sem leita til okkar slíkt hið sama, flestir gera sér ekki grein fyrir hversu mikilvægt þetta er fyrr en það upplifir það sjálft.
Æfingafélagi er mikilvægur
Við æfum alltaf saman og án hvors annars verður æfingin frekar léleg. Þrátt fyrir að við séum með töluvert ólíkar þyngdir þá höfum við sömu markmið sem gerir okkur að góðum æfingafélögum. Við náum vel saman, þekkjum hvort annað og hvetjum hvort annað. Við lyftum þungt og þess vegna þurfum við á hvort öðru að halda til að ná að kreista upp síðustu tveimur endurtekningum sem skipta svo miklu máli.
Við erum auðvitað mannleg og stundum koma tímar þar sem við hreinlega nennum ekki á æfingu, en þá viljum við ekki bregðast hvort öðru. Bestu æfingarnar verða oft þegar maður nennti engan veginn og því skiptir öllu að koma sér bara á staðinn og vera með rétta aðilanum. Æfingafélagi er því er skotheld leið til að sparka í rassinn á okkur, hvort sem er til að mæta á æfingu eða til að hvetja mann áfram. Ekki vill maður svíkja vininn/makann og mæta ekki.

Félagarnir Maggi og Jón Páll voru flottir saman
,,sniðugt að para fólk saman"
Það getur oft verið erfitt að finna æfingafélaga með svipuð markmið. Við höfum oft heyrt um fólk sem dregur hreinlega þróttinn úr annars áhugasömu liði og því kviknaði ný hugmynd á æfingu í dag. Það er að nota allt það tengslanet sem við höfum aðgang að og hreinlega “para fólk saman”. Það mun þá virka þannig að við höfum eyrun opin eftir liði með sömu markmið og getum þá bent þeim á hvort annað.
Ein meginástæða þess að fólk leitar til einkaþjálfara er ekki af því þjálfarinn veit svo mikið um æfingar, heldur er það yfirleitt afþví það þarf á aganum og hvatningunni að halda. Einkaþjálfarar eru dýrir og ef það á að hafa þetta fyrir lífstíl þá er betra að læra þetta sjálft heldur en að henda 50.000 kalli í hverjum mánuði í þjálfara. Flestir sem við þekkjum hafa ekki efni á því og því langar okkur að kenna fólki að gera þetta sjálft.
Allir geta farið eftir prógrammi, sérstaklega þegar það fylgir videokennsla með hverri æfingu. Við segjum fólki hve oft skal æfa, hvernig og hvenær.. við leggjum uppúr því að kenna það sem hefur reynst okkur vel og gerum alla þannig sjálfstæða og komum í veg fyrir að hrista hausinn á æfingum yfir einmitt kunnáttuleysinu.
og þannig næst BETRI ÁRANGUR og allir á Íslandi verða í formi afþví það hefur engar afsakanir lengur.
stuð stuð stuð
Eigið frábæran dag
kveðja
Katrín Eva og Maggi Bess
Mikilvægi félagskaparins