Þú ert hér: Heim Stefna og Gildi

STEFNA

  • Vera góðar fyrirmyndir.
  • Þetta er sameiginlegt gæluverkefni sem byggist á reynslu okkar og áhuga og er okkar framlag til sportsins. Þetta er ekki gróðraverkefni.
  • Við viljum stuðla að því að sem flestir læri réttar aðferðir frá fyrstu hendi og setji sér raunhæf skrifleg markmið.
  • Við viljum sérstaklega ná til almennings, enda vitum við að áhuginn er svo sannarlega fyrir hendi.
  • Við viljum sjá byltingu í ræktinni og sjá allar konur hætta að hanga endalaust á brennslutækjunum og snúa sér að lóðaæfingum til að byggja upp styrk, móta líkamann og auka brennsluna.
  • Við viljum stuðla að því að kúnnar okkar leggi sig 100% fram af þeirri ástæðu að þeir viti að þeir uppskeri árangur erfiðis.
  • Við viljum að fólk hafi hreyfingu og hollt mataræði sem lífstíl, fremur en skyndilausn.

 

Gildi

  • Útbreiða okkar aðferðir til að móta líkamann  með þjálfun, námskeiðum, pistlum, myndmiðlun og blaðagreinum.
  • Auka áhuga almennings og fjölmiðla á okkar sporti
  •  Hafa gaman að því að hjálpa fólki og fara sjálf eftir því sem við kennum öðrum
  • Stuðla að jákvæðu viðhorfi og vinnuanda
  •  Taka gagnrýni og athugasemdir annarra og nýta þær til aukins þroska og blóma
  • Byggja upp heiðarleg sambönd við viðskiptavini.
  • Vinna af ástríðu og ákveðni að þeim gildum og stefnu sem hér eru
 

2betri