Svona virkar fjarþjálfun okkar
Þetta byrjar allt á skráningu þar sem þú svarar löngum lista um þig
- Sjá skráningarform nánar hér:
Mikilvægt er að þú svarir öllum spurningunum eftir bestu samvisku. Þar fáum við að kynnast þér betur, hvað það er sem þú vilt stefna að, hvernig líkamsástand þitt er og líðan því tengt. Þar sjáum við líka hvort við getum hjálpað þér með markmið þín, en ef við teljum að aðrir kostir en fjarþjálfun gætu hentað þér betur þá erum við fljót að benda á það.
Þetta er fjarþjálfun og því er hægt að ná sama árangri hvar sem þú býrð. Þú sérð sjálf /ur um mælingar : cm og kg. Við leiðum þig í gegnum hvernig við viljum að þú ert mæld /ur.
AÐGANGUR AÐ LÆSTRI SÍÐU
Eftir að umsamin dagsetning rennur upp færðu aðgang að læstri síðu, sem eingöngu við og þú höfum aðgang að en hún geymir allar þær upplýsingar sem þú þarft á að halda, eins og matarprógram, æfingaprógram, markmiðasíðu og niðurstöður úr mælingum. Á þessari síðu fara öll okkar samskipti fram. Þar fylgjumst við með hvernig þér gengur og svörum spurningum sem upp vakna. Allar fyrirspurnir, æfingaplön, matardagbækur safnast arna saman og síðan verður eins konar gagnabanki yfir megaformið sem þú náðir þér í seinna meir, en þeir sem eru hjá okkur í 4 mánuði eða lengur fá síðuna að gjöf frá okkur.

SÉRSNIÐIÐ ÆFINGAPRÓGRAM
Við vinnum æfingaprógrammið útfrá listanum þínum, og stundum sendum við fleiri spurningar áður ef eitthvað er óljóst en það inniheldur videokennslu og útskýringar á æfingum og svo er annað prentanlegt eintak útbúið þar sem þú heldur skrá yfir þyngdir og bætingar.
SÉRSNIÐIÐ MATARPRÓGRAM
Ástæðan fyrir því að við tímasetjum æfingar er sú að þú færð einnig persónugert matarprógram (ef þörf er á), sem við miðum það útfrá æfinga- og vinnutíma. Það vill neflilega oft gleymast að borða rétt í kringum æfingar og því höfum við æfingarnar inni á matarprógraminu. Áður en við útbúum matarprógrammið, ertu látin/n halda matardagbók í eina viku. Þar skoðum við venjur þínar og nýtum það góða og bætum inn því sem hefur reynst okkur vel. Sumum hentar betur að halda matardagbók frekar en að fara eftir matarprógrammi og oft nýtum við þann kost frekar.

TIL AÐ HALDA ÞÉR VIÐ EFNIÐ
Á 3 vikna fresti mælir þú þig og sendir niðurstöðurnar og á 6 vikna fresti sendir þú nýjar myndir af þér. Myndirnar setjum við svo í slideshow á læstu síðuna þína, sem aðeins þú sérð og það er virkilega gaman að sjá muninn =) Þannig fylgjumst við mjög náið með árangrinum. Nýr mánuður hefst á 4 vikna fresti og þá hefur þú val um að halda áfram. En þá færðu nýtt plan í hendurnar þannig að þú ert stöðugt að breyta til og gera eitthvað skemmtilegt :)

