Þú ert hér: Heim Þjálfun Með kveðju

 Með kveðju

Katrín Eva

Ég heiti Katrín Eva og er mikil áhugamanneskja um heilbrigðan lífstíl. Ég er fitnesskeppandi og hef náð mjög góðum árangri á því sviði og veit því hvað þarf til að koma sér í gott form. Fyrir mér er ekki síður mikilvægt að halda mér í formi á milli móta, en til að það sé mögulegt er nauðsynlegt að hafa hreyfingu og hollt mataræði fyrir lífstíl.

 

Ég get pælt endalaust í hinum ýmsu hlutum og þarf ávallt að sjá tilgang í því sem ég tek mér fyrir hendur og ma. hef ég mikið velt fyrir mér tilgangnum með því að koma fram á bikiníi í skrokkashowi. Eftir farsælt ár í þessari keppnisgrein hef ég loks fattað að með allri þessari vinnu sem ég hef lagt á mig að ég er orðin fyrirmynd margra kvenna sem leitast eftir góðu líkamlegu formi og það að vera orðin fyrirmynd er virkilega gefandi.

 

Ástæða þess að það gleður mig svona mikið er sú að það eru ekki mörg ár síðan ég var sjálf 15 kg of þung og mig dreymdi um að komast í alvöru form. Ég fór að hreyfa mig og borða hollan mat, eyddi mínum frítíma í að googla greinar um æfingar, pantaði mér bækur á ebay og eyddi dágóðum tíma í að finna mér myndir af konum sem höfðu líkama sem mig langaði líkjast. Kílóin fuku af á þremur mánuðum og síðan þá hef ég leikið mér að því að móta mig með alvöru lyftingaæfingum.

 

Um daginn var ég að ganga frá bókum í hillu hér heima og rakst þar á eina bókina sem ég hafði pantað mér á ebay. Framan á henni var mynd af konu í íþróttatopp og hjólabuxum. Hún var með fallega mótaðan líkama, grannt mitti og stinna húð. Ég man eftir því að ég horfði mikið á þessa bókarkápu á sínum tíma og hugsaði hvort ég myndi einhverntíma ná þessu formi.  Þegar ég ber saman myndir af því formi sem ég hef náð og þessari konu á bókarkápunni að þá fattaði ég að ég hef náð takmarki mínu og gott betur en það.

 

 

Maggi Bess

Ég hef eytt hundruðum klukkustunda í tölvunni til leita mér þekkingar til að koma þeim fróðleik sem ég hef safnað að mér á undanförnum árum og farið eftir, sem og þeim fróðleik sem Maggi býr yfir á sem skilvirkastan hátt til þeirra sem hafa viljann til lífstílsbreytingar, en vantar þekkinguna til þess og jafnvel agann. Ég fór að aðstoða þá aðila í gegnum netið sem leituðu til mín og eftir að hafa horft á einstakan árangur þessa ört stækkandi hóps þá fékk ég viljann í að taka þetta skrefinu lengra.

 

Þetta er sameiginlegt gæluverkefni míns og mannsins míns, Magnúsar Bess, en við vinnum að þessu öllu í sameiningu. Maggi er maður sem vart þarf að kynna því hann hefur verið fremstur í sínu sporti í rúm 20 ár og er enn að. Þekking hans á æfingum til að byggja upp styrk og móta líkamann er gríðarleg og því gaman að geta boðið uppá slíkan fróðleik til þeirra sem vilja hlusta.

 

Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.

 

2betri