Þú ert hér: Heim Þjálfun SKRÁNING

SKRÁNING

Fjarþjálfun án mælinga:
Ath. Við tókum þá ákvörðun núna að taka eingöngu að okkur fólk sem leitast við að komast í betra form og vilja læra / eða hafa nú þegar gaman að því að lyfta og hreyfa sig. Við munum því ekki þjálfa fyrir mótin í haust, en fitnesskeppnir enda oft sem langtímamarkmið hjá þeim sem sýna mikinn árangur. En flestir þeir sem leita til okkar eru áhugafólk um betri heilsu og form og það er einmitt það lið sem við viljum fá inn.
Svaraðu spurningunum hér að neðan
og sendu okkur svörin þín
á Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. ásamt upplýsingum um:
Hvenær þú vilt byrja : eftirfarandi dagsetningar í boði sem stendur:
28.júlí4.ágúst11.ágúst18.ágúst25.ágúst
1.september
Við munum ekki að taka frá pláss í haust sérstaklega,
Þetta verður síðasti dagurinn sem hægt er að sækja um í bili.
Mikilvægt er að láta andlitsmynd fylgja með en við notum hana í vinnuumhverfi okkar
ATH að við þurfum líkamsmyndir eftir að skráningin er staðfest. (sjá nánar hér fyrir neðan)
Eftir að listinn hefur borist okkur og við staðfest hann:
Þarftu að greiða gjald fyrir komandi mánuð fyrirfram : 15.000 kr.
Taka myndir af þér:
Þar sem markmið þeirra sem til okkar leita er að fá betri línur þá er nauðsynlegt fyrir okkur að sjá hvernig þú ert vaxin og því þarftu að láta taka myndir af þér á bikiníi  / nærfötum:
- að framan, hlið og bak
- Það er vert að taka það fram að í öllu sem fer fram okkar á milli ríkir 100% trúnaður.
Eftir að líkamsmyndirnar og greiðsla hefur borist opnum við á þig læstu síðuna þína sem inniheldur allar upplýsingarnar frá okkur og þar sem öll okkar samskipti fara fram.
Aðeins nánar um fjarþjálfun án mælinga
vegna margra fyrirspurna:
Þetta er fjarþjálfun og því er hægt að ná sama árangri hvar sem þú býrð. Þú sérð sjálf /ur um mælingar : cm og kg. Við leiðum þig í gegnum hvernig við viljum að þú ert mæld /ur. Þú  færð bæði matar-og æfingaprógram sem er sniðið að þínum markmiðum og heldur einnig matar- og æfingadagbók sem við förum yfir til að þú missir ekki flugið.  Allt þetta safnast á síðu sem er sérútbúin fyrir þig á hana safnast allar upplýsingar bæði frá þér og okkur og verður eins konar gagnabanki yfir megaformið sem þú náðir þér í seinna meir, en þeir sem eru hjá okkur í 4 mánuði eða lengur fá síðuna að gjöf frá okkur.
Til að fylgjast með árangrinum mælir þú þig svo á 3 vikna fresti og tekur myndir af þér á 6 vikna fresti til að þurfa að halda aganum í hámarki.  Myndirnar setjum við svo í slideshow á læstu síðuna þína, sem aðeins þú sérð og það er virkilega gaman að sjá muninn =)

Fjarþjálfun án mælinga

Til að skrá þig í fjarþjálfun skaltu svara spurningunum hér að neðan og senda okkur svörin þín.
  • Mikilvægt er að þú látir andlitsmynd fylgja með en við notum hana í vinnuumhverfi okkar. 
  • Við þurfum líkamsmyndir af þér eftir að skráningin er staðfest
    • Þar sem markmið þeirra sem til okkar leita er að fá betri línur þá er nauðsynlegt fyrir okkur að sjá hvernig þú ert vaxin og því þarftu að láta taka myndir af þér á bikiníi  / nærfötum:- að framan, á hlið og að aftan
  • Eftir að listinn hefur borist okkur og við staðfest hann: Þarftu að greiða gjald fyrir komandi mánuð fyrirfram 
    • 19.900 kr. fyrir fyrsta mánuðinn 
    • og svo kostar þjálfunin 15.000 kr. eftir það.

  •  Það er vert að taka það fram að í öllu sem fer fram okkar á milli ríkir 100% trúnaður
  • ATH. Við höfum haft það þannig að Maggi sér um þjálfunina á strákum og Katrín Eva á stelpum, en við ætlum að gera breytingu á þjálfunarforminu hans Magga, þannig að við tökum ekki inn stráka sem stendur. Alexandra Sif hefur hafið störf hjá okkur og því verður þjónustan enn betri fyrir ykkur kvenfólkið :)

Aðeins nánar um fjarþjálfun án mælinga:

  • Þetta er fjarþjálfun og því er hægt að ná sama árangri hvar sem þú býrð. 
  • Þú sérð sjálf um mælingar : cm og kg. Við leiðum þig í gegnum hvernig við viljum að þú ert mæld /ur. 
  • Þú  færð bæði matar-og æfingaprógram sem er sniðið að þínum markmiðum 
  • og heldur einnig matar- og æfingadagbók sem við förum yfir til að þú missir ekki flugið.  
  • Allt þetta safnast á síðu sem er sérútbúin fyrir þig og á hana safnast allar upplýsingar bæði frá þér og okkur og verður eins konar gagnabanki yfir megaformið sem þú náðir þér í seinna meir, en þeir sem eru hjá okkur í 4 mánuði eða lengur fá síðuna að gjöf frá okkur.
  • Til að fylgjast með árangrinum mælir þú þig svo á 3 vikna fresti og tekur myndir af þér á 6 vikna fresti til að þurfa að halda aganum í hámarki.  
  • Myndirnar setjum við svo í slideshow á læstu síðuna þína, sem aðeins þú sérð og það er virkilega gaman að sjá muninn =)
 

2betri