
Alexandra kom í þjálfun í september 2010. Ég lét hana rífa sig úr til að mæla hana og meta, þar sem að hún hugðist stefna á keppni í módel fitness um páskana 2011. Undan fötunum kom rosalega grannt mitti og fallegur vöxtur sem ég vissi að skemmtilegt yrði að móta. Ég spurði hana útí lyftingareynslu sem var engin en hún sagðist eiga kærasta sem kynni á tækjasalinn, ég lét hana því strax fá hardcore prógram og hún hefur lyft 6 sinnum í viku síðan þá, með stöðugum bætingum. Það þurfti aldeilis að taka til í mataræðinu hjá henni því þó hún væri vön að borða hollt þá borðaði hún alltof lítið.
Árangurinn sem hún hefur náð á svona stuttum tíma sannar frasann minn ,,maður getur allt sem maður ætlar sér" enda fór hún ein síns liðs alla leið til Ameríku til að sanna hvað í henni býr í stað þess að hika stöðugt og þora ekki að láta drauminn rætast.
Ég þarf ekki að vera að lengja þetta mikið meira því Alexandra sendi mér þetta fallega bréf í morgun sem segir alla söguna, hún fékk ólétta konu til að skæla gleðitárum.. hehehe. Hún var líka næstum því búin að koma af stað fæðingu fyrir tímann um helgina þegar ég var að springa úr spennu yfir keppninni.
Hér er sagan af Ale litlu ... litlu stelpunni minni með brjálaða metnaðinn...
REYNSLUSAGAN HENNAR :
Það eru rúmlega tvö ár síðan að ég hef aldrei verið jafn langt niðri og jafn þung á ævi minni. Ég ákvað því að taka stórt stökk og byrja almennilega í ræktinni á ný og breyta mataræðinu til þess eins að líða betur, ekki endilega til að léttast. Ekki það að ég hef alltaf verið að æfa eitthvað en maður gerir sér stundum ekki grein fyrir hvað mataræðið hefur mikið að segja. Ég byrjaði að brenna á fullu og án þess að spá í því þá hrundu kílóin af mér en að sjálfsögðu datt mér ekki í hug að byrja að lyfta, ekki séns að ég færi eitthvað að færa mig yfir hinu megin í salinn og reyna að lyfta eitthvað fyrir framan alla gaurana þar. Fyrir utan það að mig vantaði alla þekkingu til þess! Ég vildi líka ekki vera trukkaleg, eins og það gerist eitthvað á einni nóttu haha.
Tveimur árum seinna var ég búin að koma mér í ágæta þyngd og búin að halda henni í góðan tíma en var endalaust að svekkja mig á hvað hann væri slappur, þá sérstaklega undir rassinum og mig langaði að gera eitthvað í því og skella mér í einkaþjálfun en ég þorði því engan vegin. Það var þó einn daginn sem ég var alveg komin með nóg af því að labba í hringi í ræktinni og gera alltaf sömu hlutina, brenna , og vera nánast vöðvalaus. Ég ákvað því að ég þyrfti að gera eitthvað í mínum málum og ég komst að því að þessi hasarkroppur sem hún Katrín Eva er, manneskjan sem ég var lengi vel búin að stara á í ræktinni og öfunda, sérstaklega útaf rassinum á henni haha, væri með fjarþjálfunarsíðu, þá gat ég einfaldlega ekki gert annað en haft samband við hana því ég var búin að ákveða að taka þátt í módelfitness páskana 2011.
Ég mæti til hennar í mælingu og klæði mig úr fötunum. Katrín tekur þá ekki annað í mál en að ég myndi keppa í nóvember. Mér til mikillar furðu þar sem allir í kringum mig sögðu að ég þyrfti að byggja upp vöðva og gæti aldrei keppt um páskana. Þar sem að manneskja með þessa reynslu var að hvetja mig áfram þá var ekki annað í myndinni en að slá til þar sem þetta hafði lengi vel verið stór draumur, alveg síðan á fyrstu árunum mínum í menntaskóla.


Litla mjóa krúttið, pínku hokin vegna skorts á sjálftrausti og mikillar feimni.
Ég sá það strax að það var margt hægt að gera við svona genatískan skrokk..
hún var með yndislega beinabyggingu sem gaman yrði að fá að móta.
Ég fékk æfingarplan í hendurnar frá Katríni og mætti strax á æfingu, tilbúin í allt en fyrsta æfingin sem ég tók var fætur. Ég get svo svarið þetta ég hugsaði strax hvað ég væri eiginlega að pæla, þetta var laaaangt því frá auðvelt og ég var búin á því. Ég veit ekki hversu oft mig langaði bara að gefast upp en þrjóskan í mér bannaði það og svo á ég svo góðan kærasta og þjálfara sem hvöttu mig áfram þannig það var ekki í myndinni að bregðast þeim:) Ég var dugleg að taka árangursmyndir sem var mikil hvatning í, þar sem að maður sér oft ekki munin á sjálfum sér í speglinum.
Þegar að mótinu kom í nóvember tók ég svo myndir sem ég bar saman við fyrstu myndirnar og ég get svo svarið það að ég var orðlaus yfir árangrinum á sjálfri mér, þannig að mér fannst það sigur fyrir sig.
Eftir mótið í nóvember tók ég ekki í mál að fara hætta núna, þetta var orðið að lífstíl að lyfta og mig langaði að vinna enn meira í líkamanum á mér. Þannig ég ákvað að halda áfram í þjálfun hjá Katríni. Nú var komið að erfiðum hluta. Það var ekki búið að vera auðvelt að byggja sig upp fyrir nóvember mótið, kostaði blóð, svita og tár en það var ekkert miðað við það sem ég fór út í eftir á. Núna var komið að pura uppbyggingu, sem sagt borða meira og vel og ekki brenna neitt.
Ég fékk nýtt plan og öll brennsla var köttuð út, stefnan var sett á Íslandsmeistaramótið um páskana að keppa í módelfitness, en Katrín var þó oft að ýja að mér að taka þátt í svokölluðum Bikini flokki á Arnold Classic í USA sem er mót sem hún hafði keppt í árinu áður í figure og unnið sinn flokk þar. Ég hafði nú ekki mikla trú á mér í það og hélt bara áfram mínu plani.
Katrín ætlaði nú ekki að gefast upp og hélt áfram að nefna þetta við mig þannig að áhuginn varð alltaf meiri og meiri og ég fór að skoða þetta betur á netinu. En á meðan var ég dugleg að lyfta þung og bætti gríðarlegu magni á vöðvum og var alveg brjáluð að reyna að bæta á efri líkamann og þá sérstaklega hendurnar þar sem erfiðara var fyrir mig að byggja mig upp þar. Árangurinn var þó alveg að skila sér og alltaf varð ég ánægðari og ánægðari þegar ég fór í mælingu til Katrínar og hendurnar voru búnar að stækka en á meðan var erfitt að komast ekki í öll fötin sín.
Enungis einum og hálfum mánuði fyrir mót var Katrín enn að hvetja mig áfram að taka þátt og ég hugsaði að ef að Katrín með alla sína reynslu hefur trú á mér, af hverju ætti ég ekki að gera það!?. Þannig að ég ákvað að slá til og við sendum inn umsókn fyrir mig að keppa sem komst í gegn. Stefnan var því sett á Bikini flokk á Arnold í mars.
Þegar ég byrjaði að skera niður fyrir það mót kom algjörlega í gegn árangurinn sem ég var búin að ná, öll harða vinnan var að skila sér.

Ég tók mynd af mér sem Katrín setti saman við mynd frá því ég byrjaði og ég var bara orðlaus,
árangurinn sem ég er búin að ná á hálfu ári er alveg hreint ótrúlegur,
en hann kom alls ekki gefins.
Ég fór út og afrekaði það að komast í topp tíu af ca. 40 stelpum, í annað skipti sem ég tek þátt og það á svona stóru móti í Bandaríkjunum, gæti ekki verið meira ánægð með allt saman. Algjört ævintýri þessi upplifun.

Alexandra geislaði af öryggi á sviðinu

.. og var að sjálfsögðu langflottust að mínu mati :)

.. eina med bak sjadu til:) eg mundi ordi tin:) brjost ut, latzar ut, rass ut hihi
(orð Alexöndru.. hehehe)
Ég er svo innilega ánægð yfir árangrinum sem ég hef náð hjá Katríni en hún veit alveg upp á hár hvað hún er að gera, hún og maðurinn hennar Maggi eru algjör yndi og mér fannst ekkert betra en að fá hrós og hvatningu frá þeim enda eru þau ein þau bestu í bransanum hér á landi. Katrín veit alveg nákvæmlega hvað hún er að gera enda heldur hún utan um mann á alveg frábæran hátt í fjárþjálfuninni sinni. Það sem mér finnst líka svo gott er að hún gerir manni alveg grein fyrir að þetta sé eitthvað sem maður þarf sjálfur að hafa fyrir, hún settur upp ræktarplan, matarplan og gefur manni upplýsingar en svo er það algjörlega undir þér komið hvernig þú vinnur svo með það sem hún gefur þér í hendurnar. Maður sér strax mun eftir mánuð en það er allt vegna þess hve frábærlega hún setur upp plönin, þannig að fólk sjái árangur sem fyrst því það er algjörlega það sem heldur manni gangandi.

Eftir grjótharðar beygjur og mikið magn af hollum mat er stelpan komin með alvöru rass og bak
Eftir að ég tók þátt seinast fóru nánast allar vinkonur mínar í þjálfun til hennar og við erum allar sammála um að það að mæta til hennar og hitta hana er svo mikil hvatning, og ég viðurkenni að oft var maður búin að missa trúna á sjálfum sér svona rétt undir enda mánaðarins en að mæta til Katrínar og heyra það sem hún var að segja reif mann strax upp og fékk mann til að vilja standa sig enn betur.

Rosalegur magi !
Eins og ég segi þá er ég í skýjunum yfir þessu öllu saman, þetta hefur gert svo mikið fyrir mig bæði andlega og líkamlega, sem sést kannski best á myndunum líka þar sem ég er að pósa, munurinn á fyrstu myndunum og nú.

Sunnudagurinn fyrir mótið, orðin brjálaður skrokkur og sjálfstraustið komið
Þetta kenndi mér líka svo margt, ég borðaði nú alveg svona frekar hollt áður en borða nú hollara, og það sem mig vantaði og ég veit að er oft venjan með stelpur er að borða reglulega. Ég ber mig mun betur líkamlega séð og er þar af leiðandi líka ánægðari með sjálfa mig. Það sem skipti mestu máli fyrir mig var hvatningin frá Katríni og vita það að hún hefði trú á mér, en það fékk mig til að hafa trú á sjálfri mér og kom algjörlega í veg fyrir að ég léti einhvern tíman verða af því að hætta við.

Alexandra og Sif Sveins, brjálaðar skutlur í úrslitakeppninni á Arnold Classic
Mér finnst svo skemmtilegast við þetta allt saman að sýna öðrum árangurinn og það að geta fengið fleiri stelpur til að lyfta en það er alltof algengt að þær séu fastar bara í brennslunni eins og ég var, við þurfum jafn mikið að lyfta eins og strákarnir, en við erum svo margar sem þorum því ekki. Við höldum að við verðum einhver massatröll af einni æfingu, en sú er alls ekki raunin þar sem þetta krefst mikillar vinnu. Eins og ég sagði hér fyrir ofan eru flestar mínar vinkonur komnar til Katrínar og er ég ekkert smá stolt af þeim:) gaman að geta verið öðrum hvatning.

Alexandra með aðalmódeli Bodybuilding.com, held að það sé ansi stutt í að hún verði þar sjálf !
Get ekki þakkað Katríni nægilega mikið fyrir allt saman, ég er svo allt önnur manneskja en ég var þegar ég mætti til hennar hokin og feimin í september. Ég væri ekki hér í dag með alla þessa reynslu og bætingar ef það væri ekki fyrir hana.
Takk kærlega fyrir mig Katrín:)

Ale að læra pósurnar af meistaranum
Í alvörunni ég get ekki þakkað þér nóg, ég er bara að kynnast nýrri mér og get ekki beðið eftir öllu sem er framundanJ Það sem þú og Maggi gerið fyrir íþróttina er alveg frábært, vona að þið gerið ykkur grein fyrir því:D . Þið eruð fyrirmyndin mín :)
kveðja
Alexandra Sif
EFTIR AÐ ALEXANDRA KOM HEIM ÞÁHEFUR ÁRANGUR HENNAR VAKIÐ VERÐSKULDAÐA ATHYGLI :


Viðtal í Monitor, sem fylgir Mogganum

Auglýsingar fyrir perform.is fæðubótaefnaverslun
