Í vor fékk ég svohljóðandi bréf ...
Hi þið þekkið mig ekki neitt :P en mig langar að byrja á því að hrósa ykkur fyrir magnaðann árangur :D ÞIÐ ERU BÆÐI þrusuflott :P En mig langar að keppa í fitness núna í NóV og mig langar ekki að tala við neinn af þessum týpísku þjálfurum :P samt hef ég ekki hugmynd hvort að þið eruð að standa í einhverju svoleiðis ;) en skaðar ekki að spyrja, því það sést greinilega að þið vitið hvað þið eruð að gera!!!
Þá var ég að fikra mig áfram með fjarþjálfunina og ákvað að regla nr. 1 væri að ég myndi aldrei að hjálpa stelpum fyrir keppnir. Enda er þetta þrusuerfitt sport bæði undirbúningurinn og eftirleikurinn. En hún sannfærði mig að hún væri sterk á alla kanta og það má því segja að það sé stelpunum sem ég hjálpaði í haust að þakka að ég er á fullu að hvetja flotta skrokka til að henda sér á sviðið :)
Pálína kom svo til mín 3 mánuðum fyrir mót, stelpan var með þrusulínur en átti töluvert í land með köttið. Og eins og Maggi orðaði það ,,Ætlar þessi stelpa að keppa í haust?? Katrín, hún er bolla" En Pálína er ein af þrjóskari píum sem ég hef kynnst. Frá því í apríl gerðist hún google frík eins og ég sjálf er og ég hef aldrei hitt manneskju sem kann síðuna bodybuilding.com utanbókar.. Það kann Pálína !!! hehehe.. hún getur þulið um heilu greinarnar, þannig að ég fór oft að hlægja á mælingadögum því ég sagði eitthvað og þá kom alltaf ,,jaá... en á bodybuilding.com þá var sagt..."
Fyrstu 2 mánuðina gerðist voða lítið hjá henni og ég var orðin drullupirruð og skildi ekki afhverju hún var stöðnuð en hinar köttuðust hratt. Þá var ráðið að kötta nánast alveg á kolvetnin þar sem hún var búin að lifa á slíku fóðri undanfarið ár og þá fór allt að gerast ! .. Hún tók sækófílinginn á þetta og kom sér úr 70 kg í 58 kg á notime og varð þrusu FLOTT ! Til að þið áttið ykkur betur á árangrinum hjá ykkur þá fáið þið myndir.. þær segja allt ! ... flestir gapa þegar þeir sjá þetta enda fáránlegur munur.
En eins og ég segi ávallt um alla sem til okkar leita, við komum með tillögur að því sem má betur fara en það er allt undir einstaklingnum sjálfum komið hvernig hann nýtir sér það. Pálína sá alfarið um svitann og streðið og þarna fann ég að það er pínku þæginlegt að vera bara áhorfandi .. hehehe :)


REYNSLUSAGAN HENNAR :
Ég tók þá ákvörðun um páskanna að mig langaði að keppa í fitness, en var töluvert þyngri en maður þarf að vera til þess að geta keppt. Þannig ég setti alla orku mína í það að reyna að grennast til þess að geta keppt. En hlutirnir sem þú þarft að vera með á hreinu eru margir fyrir mót og vissi ég ekki helminginn af þeim! Þannig ég leitaði til Katrínar og Magga síðustu 3 mánuðina fyrir mót og árangurinn var hrikalegur.
Það sem ég líkaði mest við þjálfunina hjá þeim var það að alltaf þegar maður kom í mælingu var Katrín alveg jafn ánægð og þú yfir árangrinum eða alveg jafn miður sín yfir lélegum tölum! Þannig maður reyndi að gefa æfingunum allt til að fá góðar tölur. En auðvitað kemur ekki árangur nema þú viljir hann "BAD ENOUGH!!!" Alveg sama hversu góður þjálfarinn er þá þarft þú að setja vinnuna í þetta og metnaðinn, þjálfarinn er hjálpartæki til þess að hjálpa þér á áfangastað!!!
Katrín var mitt hjálpartæki og hef ég aldrei verið jafn hraust, grönn eða bara litið jafn vel út :D
