FITNESS SAGAN
Það er rétt komið ár síðan ég byrjaði að keppa í fitness...
- Fyrsta mótið mitt var í Osló, það má því segja að Maggi hafi hent mér beint í djúpu laugina. Þar var markmiðið mitt að gera mig ekki að fífli því flestir sem ég þekki reyndu að tala mig af því að keppa. Ég komst í úrslit á mótinu og endaði svo í þriðja sæti. Mér leið eins og ég hefði orðið heimsmeistari.
- Helgina þar á eftir keppti ég svo heima og varð Íslandsmeistari, en það var mitt fyrsta mót hérlendis. Þarna hafði mjög svo fjarlægur draumur ræst !
- Og helgina þar á eftir keppti ég í Danmörku á mjög sterku móti sem heitir Loaded Cup og varð í fjórða sæti. Ég tel það vera mjög góðan árangur miðað við að þá var ég orðin þreytt á því að kötta og át súkkulaði í staðin fyrir kjúkling. Það geri ég aldrei aftur... hehehe. Engu að síður var frábært að keppa á þessu móti. Við hvert mót sem maður keppir á öðlast maður reynslu, sem nýtist manni seinna meir.
- Ég byrjaði því framar vonum í þessu sporti en ég er líka með þann besta á Norðurlöndunum og 31 faldan Íslandsmeistara í vaxtarrækt mér við hlið. Magnús Bess er maður sem hefur endalausa trú á mér og rífur mig upp þegar ég fer að efast. Tveir eru alltaf sterkari en einn :)
- Svo tók ég nýjan vinkil í sportinu og mætti í Smáralindina um haustið á móti 20 stelpum að keppa um titilinn Sterkasta kona Íslands, þar kom ég sjálfri mér mjög á óvart og reif til dæmis upp 150 kg í Réttstöðulyftu og vann 3 greinar af 6 og endaði í þriðja sæti. Það þótti sérstakt því ég er bara 60 kg sjálf.
- Ég tók svo kött í 3 vikur og mætti á Bikarmótið í fitness í nóvember og endaði í öðru sæti. Þegar þú hefur verið í fyrsta sæti, þá er þetta ekki bikar sem þig langar í. Þess vegna spýttti ég í lófana og hét mér því að ná mér í fyrsta sætið aftur. Ég æfði af krafti, borðaði hollustu út í einn og hugsaði aftur og aftur tilfinninguna sem fylgdi því að vinna og sá það fyrir mér, Ég var í raun stórhættuleg í vinnunni því ég vinn við að hella áli og þú þarft því að hafa hugann við það sem þú ert að gera en ekki á sviði sprangandi um á bikiníi :)
- Ég uppskar eftir því. Í byrjun mars héldum við til Bandaríkjanna, nánar tiltekið til Columbus í Ohio til að taka þátt á einu stærsta Vaxtarræktar- og fitness móti sem haldið er í heiminum.. Það heitir Arnold Classic og er kennt við hinn fræga Arnold schwarzenegger. Ég keppti þar í Figure F í áhugamannaflokknum og mér til mikillar hamingju þá stóð ég uppi sem sigurvegari. Að vinna á svona stóru móti er vissulega hvatning til að halda áfram að gera góða hluti. Ég slæ ekki slöku við á meðan áhuginn er til staðar sem og aginn sem hafa þarf til að byggja upp flottan skrokk.
- Í lok maí fór ég svo á Evrópumót sem haldið var í Serbíu, algjör snilld að fara á svona stórmót. En ég náði því miður engan vegin að verða nógu köttuð, varð veik og mætti á svið langt frá mínu besta formi, þrátt fyrir að ég hefði náð því þá hefði sigurinn verið fjarri, því áherslurnar á Evrópu og Heimsmeistaramótum er skurður, eitthvað sem er ekki mín sterkasta hlið.. hehehe. En við kynntumst frábæru fólki úr sportinu og þetta var mikil reynsla í fitness bankann minn.
- Ég tók vænt og gott sumar og við Maggi ákváðum að stefna á mót hér heima í haust, það átti að halda risa mót hér heima Icelandic Fitness & Health Expo. Ég ákvað í þetta skiptið að byrja köttið vel snemma, ætlaði ekki að klikka á sama atriði tvisvar. Köttið gekk fyrst vel og svo nákvæmlega ekki neitt og þegar ég loksins náði að kveikja á fattaranum þá komst ég að því að ég var ólétt :) .. Þannig að nú er bara stærsta hlutverk lífs míns að detta í hús, móðurhlutverkið. Eigum von á spræku barni í apríl 2011. :)
- Ég er þó langt því frá að vera fjarri heilsusamlegum lífstíl, því ég held ég hafa aldrei þurft að pæla jafn mikið í slíku og nú. Ég bjó til skemmtilegustu vinnu í heimi og stofnaði fyrirtæki sem er í eigu okkar Magga, Betriarangur.is. En við vinnum við að ráðleggja fólki um allt land (og erlendis) hvernig okkur finnst sniðugt að byggja upp æfingaplön og haga mataræðinu. Það er allt crazy að gera enda er ég á þeirri skoðun að allt getur gengið upp þegar maður setur metnað í það.
UNDIRBÚNINGUR FYRIR MÓT
- Undirbúningur stendur yfir allt árið. Ég lyfti mjög þungt og æfi sex daga vikunnar. Ég er í formi allt árið og hleypi mér lítið upp, enda finnst mér lítið spennandi að vera bara flott einu sinni á ári. Þess vegna verður undirbúningurinn fyrir mót auðveldur, því ég þarf að breyta svo litlu. Við erum bara aðeins harðari í matarræðinu og sleppum sósum og slíku og bætum brennslu við æfingarnar.
- Fyrir mig persónulega er þetta sport erfiðast fyrir hausinn.
- Minn stærsti veikleiki er að höndla gagnrýni og þarna er ég að labba uppá svið og gefa færi á því að allir gagnrýni mig.
- En kosturinn við þetta er að þarna er þörf á sjálfsaga og ég er smátt og smátt að læra hann. Hann getur maður nýtt sér á fleiri sviðum í lífinu og það er stefnan.
SVONA FER KEPPNIN FRAM
- Á IFBB mótum þá er samanburður í svörtu bikiníi og í sundbol. Síðan komast sex áfram í úrslit og þá er komið fram í lituðu bikiníi. Að því loknu er verðlaunaafhending.
- Samanburðurinn fer þannig fram að við þurfum að snúa okkur á fjóra vegu fyrir marga dómara sem dæma hvernig við erum byggðar.
- Body Fitnessið er ekki lengur svona “hart lúkk”, reglunum var breytt á síðasta ári með tilkomu nýs flokks sem heitir Classic Bodybuilding og sennilega þess vegna hefur mér verið að ganga vel. Það er verið að leita eftir vel tónuðum vöðvum og samræmi milli líkamsparta og það er dæmt niður fyrir of mikinn skurð og of mikla vöðva.
Um mig







