Veisluturninn er framsækið þjónustufyrirtæki í veitingarekstri. Þeir bjóða glæsilega veislu- og fundaraðstöðu á tveimur efstu hæðunum í hæstu byggingu Íslands við Smáratorg og fyrsta flokks tæknibúnað sem nýtist einkar vel til ráðstefnu- og fundarhalda.
Hjá þeim starfar samhentur hópur fagaðila sem tryggir framúrskarandi þjónustu og veitingar sem færa þig og þína í hæstu hæðir. Fyrirtækið rekur einnig hinn margrómaða hádegisverðarstað Nítjánda sem er á nítjándu hæð Turnsins en óhætt er að segja að Nítjánda hafi skipað sér í raðir vinsælustu hádegisverðastaða landsins.

Smelltu hér til að skoða nánar hvað þau hafa uppá að bjóða
Um mig







