Við erum búin að fá svo rosalega frábær bréf og komment að ég verð bara að deila því með ykkur ! Er alltaf á leiðinni að gera svona fancy meðmælasíðu, en þetta verður að duga í bili. Þar sem ég bað liðið ekki um hvort ég mætti setja þetta hér. Þetta er órekjanlegt, þannig að ég vona að það sé í lagi... fyrr en seinna ætla ég að hafa nöfn og myndir ásamt árangurssögum.
En að lesa þetta allt yfir... úff hvað við erum með fallegan hóp ! =)
***
ÉG ER ÓTRÚLEGA ÁNÆGÐ MEÐ NIÐURSTÖÐUNA, ALVEG YNDISLEGT ALVEG HREINT :)
þið eruð bara snillingar og frábært að vera hjá ykkur.
Ég er líka öll mun léttari bæði andlega og líkamlega EN ÉG ER EKKI HÆTT :) :)
ÉG GET ÆTLA og SKAL !!
Þú átt örugglega aldrei eftir að losna við mig :) :) :)
***
Jæja æfingarnar og mataræðið farið að sjást utan á manni greinilega.
Fékk þvílíkt hrós um helgina frá vinkonum um hvað ég liti vel út.
Kærastinn talar líka heilmikið um hvað ég líti vel út (hefur svosem alltaf gert það ;)
en að hann sjái mun á mér líka varðandi orku og útgeislun.
Vildi bara deila þessu með þér.
Ég segi fjölskyldu og vinum að þetta sé ein besta fjárfesting sem ég hef lagt í.
Er brjálæðislega ánægð með þetta prógramm!
Ef þig vantar eitthvað kvót til að setja á síðuna þína eða í auglýsingu um þetta þá geturðu fengið mjög jákvætt hjá mér :)
***
Finnst 15.000 alls ekki mikið fyrir allt sem maður er að fá, þetta er búið að vera alveg ómetanlegt fyrir mig
***
Ég er ekkert smá ánægð með það að við skyldum hafa fundið ykkur og ákveðið að drífa okkur til ykkar ;o)
Þetta er akkurat punkturinn yfir i-ið og það sem okkur vantaði ;o)
***
Ég er ótrúlega montin af árangnum sem ég hef náð MEÐ YKKAR HJÁLP..
ÞIÐ ERUÐ BARA BEST
ÉG hefði ekki getað þetta án ykkar..
Ég ætla að vera súper dugleg og taka þennan mánuð í nefið
![]()
***
Var mjög ánægður með árangurinn í síðasta mánuði að ég gekk eiginlega á skýi
***
Það besta er að þetta var alls ekki jafn erfitt og ég hefði haldið!!! 
Þess vegna væri það bara aumingjaskapur af mér að hætta núna og hananú!
Hvernig ferðu að því að gera þetta svona auðvelt??
Katrín þú ert snillingur það er bara þannig!!
þú átt sko stóran þátt í því að ég brosi hringinn núna í hvert sinn sem ég lít í spegil.
Hamingjusamari stelpu finnur þú ekki í dag 
***
Elsku Katrín Eva
Mig langaði bara að segja þér að ég er svo glöð með það hvað þetta hefur gengið vel hjá mér þrátt fyrir veikindin og hefði ég aldrei getað þetta án þín.
Þetta hefði ég aldrei getað gert án þess að fá þína aðstoð. Þegar ég var grönn þá var ég með gríðanlega áhuga á að halda mér í formi en það var eitthvað svo miklu einfaldara þá því ég var mjög sátt við útlit mitt eins og ég var þá. Þá var ég ekki að keppast við að missa þyngd heldur var ég meira bara að vinna halda eins og ég var og ekkért meira en það. Síðustu ár eða eftir að ég varð 80 + hefur þetta verið svo erfitt því árangurinn hefur komið svo hægt og þar sem ég vil að allt gerist í gær hefur alltaf verið svo stutt í uppgjöfina.
Ég var búin að reyna ALLT!!
- Herbalife
- Lr kúrinn (Gerðsit meira að segja söluaðili)
- Danska kúrinn
- Landspítalakúrinn
- Crash diet
- Hreinsikúrinn Clean 9
- Allskyns brennslutöflur.
- Meira segja sleppt því að borða :( (Svellta mig)
Og undir það síðasta þá reyndi ég að æla til að losa mig það sem ég hafði borðað. Gekk ekki því það er það versta sem ég veit það er að æla (Sem betur fer!!) og elska að borða óholt. Hefði þurft að vinna við að æla því ég át svo mikið óhollt yfir daginn. Ég var orðin svo leið yfir því hvernig ég var og uppgjöfin mín var orðin svo mikil að ég einhvernvegin sá ekki fram á að ég gæti einhverntímann orðið grönn aftur. Veit ekki hvernig ég gat gefist svona upp þar sem það á ekki við mig en samt á þessu sviði fannst mér ég gjörsigruð. Síðan sá ég auglýsinguna þína á barnalandi og ákvað að slá til enda að mínu mati ekki hægt að fá betra fólk til að leiðbeina sér. Fólk eins og ykkur sem er búið að eyða gríðalega miklum tíma í að stúdera hvað virkar og hvað ekki.
En eftir að ég kom til þín í fjarþjálfunina breyttist eitthvað. Þú ert svo algjörlega laus við alla fordóma og mér líður ekki illa með að spyrja heimskulegra spurninga eða berhátta mig i mælingum þrátt fyrir að vera með massa lítið sjálfstaust með líkamann minn. Þú ert búin að deila með mér allri þinni viskunni um hvað er að virka peppa mig gríðalega upp. Það að fá aðhaldið og ráðleggingarnar sem þú veitir, æfingaprógrömmin og matarplönin er gríðarlega gott því þá veit ég að ég er að gera rétt og líður vel með hvern dag. Enginn efi um hvort þetta eða hitt sé rétt eða ekki.
Núna í dag er ég aftur orðin kappsfull og farin að sjá að þetta er svo vel hægt bara ef maður virkilega vill það og nennir að hafa fyrir þessu. Hugarfarið mitt er orðið allt annað og freistingar eru ekki lengur jafn neikvæðar eins og þær voru. Núna lít ég þær til að herða mig og ef ég stenst þær þá er það svo uppbyggjandi og veitir mér miklu meiri ánægju að hafa staðist þær heldur en að borða þær eða drekka.
Mig langaði bar svo að láta þig vita að þetta hefði ég ekki getað án þinnar hjálpar og ég er óendanlega hamingjusöm og þakklát fyrir að hafa komið til þín í þjálfun.
Takk fyrir mig og hlakka til að halda áfram.
(ef þú þú telur að þessi frásögn eigi eftir að hjálpa öðrum þér velkomið að nota hana svo lengi sem það kemur ekki fram um hvern hún er eða hver skrifar hana. Það eru svo margir í þessum sömu sporum og ég var og ég veit að eigin reynslu að þegar maður les um einhvern sem hefur verið að glíma við það sama og maður sjálfur og sér svo að það er hægt að stíga út úr ástandi með hjálp frá fólki eins og þér sem hefur áhuga á að aðstoð og hjálpa svo ekki sé talað um að gera það að áhuga og heilum hug
Umsagnir um þjálfunina